Færsluflokkur: Bloggar
5.7.2008 | 16:31
Tökum á móti þeim
Eigum við ekki að veita þeim pólítískt hæli á íslandi? Svona í skiptum fyrir ramsey, 148 manna hópur.
Flóttamenn koma með báti til Spánar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2008 | 10:31
Hvar er ábyrgð foreldranna?
Þetta hef ég aldrei skilið, foreldralaus og fylgdarlaus börn uppáklædd í einhverjum fígúrubúningum, betlandi sælgæti í skiptum fyrir falskan söng. Föst í föruneyti sykursins í átt að en einu blóðsykursskots skammtinum sem skýtur fram insúlín vökvuðum svitaperlum á andliti þeirra sem sönnun um fíknina.
Síðan ráfa blessuðu englarnir um einsog langt sökknir fíkniefnaneytendur í leit að meiru. Hvar er lýðheilsustöð? Hvar er íþrótta álfurinn núna? Hvar er tannlæknafélag íslands? Það er margsannað að hvítur unninn sykur hefur slæm áhrif á mannslíkamann og þessi öskudagshefð er einsog vatn á myllu karíusar og baktusar hvað varðar tannheilsu.
Furðuverur á faraldsfæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2007 | 15:41
En landinn....gamli góði?
já það vantar nú menningararfleið landans inn í þessar tölur.
Áfengisdrykkja jókst mest á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2007 | 10:34
Undir grænu grasi
já, þegar menn eiga ekki viðreisnarvon einsog viðkomandi, og gef ég mér það að ættingjar og vinir séu löngu búnir að gefast upp, þá er bara eitt í stöðunni til að samfélag skattborgaranna fái að njóta sín sem öruggast og best en það er að koma kvikindinu fyrir kattarnef.
Amen.
Árs fangelsi fyrir fjölda brota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2007 | 14:14
Sé ég fingur á lofti?
hvurrrrr anssskotinn, hvaða fagmaður er þetta?
hulið númer, sólskyggni í 90°, fingur á lofti og afsprengið í farþegasætinu með í andfélagslegum mótmælum grumpy old afa.
Fálkaorðu á manninn og tveggja punkta sekt og þá eru allir sáttir.
kv
Subaru
Huldi númerið og ók of hratt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2007 | 16:28
Gengið er ekki 69,4$, hahah, type ó, type ó
Krónan styrktist um 0,39% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.11.2007 | 10:51
Toppurinn á ísjakanum
Jæja þá er komið að því, í fyrsta skipti á íslandi ( í langan tíma ) verður stofnað til hópsæsings og tilvonandi múgsefjunar meðal sauðsvarts almúgans á íslandi sem hefur sætt sig við hvað sem er undanfarinn misseri án þess að hann hafi haft rænu á því að lyfta litla putta á móti.
Nú skiptum við um gír sem samfélag setjum bænagangöngur, kertafleytingar á tjörninni og aðrar sambærilegar kærleiksríkar fjölskylduskemmtanir í salt. Nú er það samábyrgðarleg fjárhagsleg sjónarmið sem ráða ríkjum.
Nú í ár verða áramótabrennur landans vonandi með nýju sniði, gömlu góðu galdrabrennurnar verða endurvaktar einsog þær þekktust hér fyrr á öldum nema núna er það þjófalýðurinn sem fær að kenna á því. Hreinsunareldurinn kæri.
Meðan hitasvækjan gustar framan í ykkur á gamlárskvöld skulu þið minnast allra launaseðlanna ykkar síðustu þrjátíu ára og velta fyrir ykkur í hvur anssskotann skatturinn sem þið borguðu af þeim fór í.
"what's ya gonna do with that snaggle tooth?"
Grunur um 200 milljóna króna svik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 23:12
Hvar er þetta blessaða atvinnuleysisfólk?
Jú ég skal segja ykkur það, það er heima í eldhúsinu hjá sér að keðjureykja gold coast rauðan og drekka sótsvart instant kaffi meðan það hlær að atvinnuauglýsingunum blaðanna,
" hahahaha, 140þúsund á mánuði fyrir þetta, 160 fyrir þetta, svei attan, nei, frekar held ég mig heima og dunda mér í tölvuleik eða fylgist með guiding light fyrir hátt í 100þúsund kall, þarf ekki að stíga út fyrir dyr í þessari 3 mánaðra stanslausu rigningadrullu á útskeri vorru"
Þrefalt húrra fyrir Árna magg, hipp hipp húrreii.....
"góðar stundir"
Atvinnuleysi mælist enn 0,8% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2007 | 18:24
hverjum er ekki sama?
svona ekki fréttir eru bara til að ausa vatni á myllu kölska.....
Eiginmaður Amy Winehouse handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2007 | 12:22
Snáfiði burt, sveiattann, spar spar palli.
Þarf virkilega á 21.öld tækni, tölvu og upplýsingasamfélagsins að hafa þuli til að til að gapra ofan í starsjúkann sauðsvartann sjónvarpsgláps sófasitjandi almúgann sjónvarpsdagskránni á hinu ylhýra móðurmáli.
Væri nú ekki frekar nær að spara þésja pénínga svo einsoghálfsmilljóna króna launamaðurinn í sjónvarpshúsinu geti tekið bensín á rúvjeppann?
" þula! er það eitthvað nýtt ofan á brauð? "
Flugfreyja flýgur í þulustarfið á RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)