6.2.2008 | 10:31
Hvar er ábyrgð foreldranna?
Þetta hef ég aldrei skilið, foreldralaus og fylgdarlaus börn uppáklædd í einhverjum fígúrubúningum, betlandi sælgæti í skiptum fyrir falskan söng. Föst í föruneyti sykursins í átt að en einu blóðsykursskots skammtinum sem skýtur fram insúlín vökvuðum svitaperlum á andliti þeirra sem sönnun um fíknina.
Síðan ráfa blessuðu englarnir um einsog langt sökknir fíkniefnaneytendur í leit að meiru. Hvar er lýðheilsustöð? Hvar er íþrótta álfurinn núna? Hvar er tannlæknafélag íslands? Það er margsannað að hvítur unninn sykur hefur slæm áhrif á mannslíkamann og þessi öskudagshefð er einsog vatn á myllu karíusar og baktusar hvað varðar tannheilsu.
Furðuverur á faraldsfæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ljóst af skrifum þínum hér að þú hefur aldrei upplifað gleðina að vera í öskudagsliði og fara í bæinn með fullt af æfðum söngvum... Greyið þú!!!
Aska (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.