vó, hold your horses, alltof róttækt

þvílík lausn.....


mbl.is Fallist á tilmæli talsmanns neytenda um samræmi hillu- og kassaverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins kominn aftur

Hef verið frá upp á síðkastið einsog dyggir aðdáendur síðunnar hafa orðið varir við, ekki beint um ritstíflu að ræða en þó blöndu af orku og tímaleysi.  Skrifleg afsökunarbeiðni hefur verið send í pósti til þeirra er málið varðar. 

Gósentíð hefur verið undanfarnar vikur í tjáningu á mannlegri hegðun í vorru landi.  Sannar allt sem sanna þarf með hversu hræsnafull mannskepnann er þrátt fyrir alla siðfræðina.  Lögmál lýginnar er víst algilt fyrirbæri á öllum vígstöðvum, sama leynivopnið sem hægt er að grípa í til að bjarga eigin skinni.

 


Harmsaga

"hvað ertu að gera?"

"ég, ég, ég er bara að gera mynd"

"af hverju ertu að spreyja hér á vegginn?"

"ég veit það ekki, mér langaði bara að gera verk hér"

"þú veist að það er ekki leyfilegt að gera mynd á þennan vegg?"

"já"

"en af hverju ertu þá að gera hana?"

"bara......bara, ég veit það ekki"

hálfþrítugur karlmaðurinn brotnar niður í grúfu með aðra hendina á rauðlituðum spreybrúsanum vonsvikinn út í sjálfan sig fyrir að hafa látið góma sig aftur og við svokölluðu listformsiðju sína, lögregluþjónarnir standa yfir honum í faðmi.

"ég geri þetta aldrei aftur, ég lofa"

 


mbl.is Veggjakrotari staðinn að verki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menu: Gras og snjór

Barst hér bréf frá litlum fugli sem hreiðrar um sig í mötuneyti skólans.  En það hljómar einhvern veginn svona. 

Ef þetta er eitthvað vandamál þá getað blessuð börnin bara farið út og bitið gras og snjó og fengið sér góða innöndun af súrefni í dessert.  Inn um munninn og út um nefið.  Eða viljið yður frekar pítssssur er það,það, það sem þið viljið?...skammist ykkar 

" strýkur um ennið sér vélstjórinn, kófsveittur nýkominn úr stímandi heitu vélarrúminu, með hárið flatt allt um hlið á stjórnborða, "fyrirgefðu geturðu nokkuð lánað mér hárkollulím" "

Ég elska þig dagbjört, bið að heilsa bödda.


mbl.is Þurfa að kaupa tvær máltíðir á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandari ársins

Hvaða vitleysa er nú þetta, litla soprano ísland er ekki lengur minnst spilltasta landið, ég hef áhyggjur af þessu, ég verð að segja það.  Takk bjartmarz.
mbl.is Lítil spilling á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjöfin í ár

DSCF1268-vi

Hvað er nú þetta?  Látið hugann reika og það síðasta sem kemur upp er eflaust rétt.


Lengi lifi skokkið

Ég hef aldrei skilið þennan fótbolta, hálfnaktir karlmenn að elta leðurtuðru fram og til baka, nær ekki nokkuru átt.  Frekar nær að skokka í eina átt frjáls og á farti.
mbl.is Fótbolti er betri líkamsrækt en skokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Surf up mate!

Þetta eru náttúrulega bara fagmenn sem kunna svona á kerfið, svokallaðir félagsfræðingar.  Verst að það vantar alveg veðrið í þetta hér þó brimið er til staðar.

mbl.is Vinnufælnir brimarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seinn að fatta eða kominn í andstöðugírinn?

Það er of seint í rassinn gripið þegar sá brúni er kominn niður, og svei mér þá ef hann sé ekki grjótharður og klébraður í buxunum á íslensku þjóðinni og lyktin er óbærileg.  Og sem betur fer hafa menn einsog Guðni loks núna vaknað til lífsins nokkrum árum of seint af stækjunni þrátt fyrir að hafa unnið stóra pókerspilið með blöffi í þarsíðustu kosningum og gefið alla ásana úr spilastokknum til bankanna.  Það þarf einhvern til að skipta um og mylja úr buxunum og sá eini aðili sem getur gert það er móðir evra.  Hún lætur ekki bjóða sér himinháa vexti í kaup og aðra vitleysu einsog gamla kæra amma króna.    
mbl.is Það vantar gagnrýnið samfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvennprestar allra landa sameinist?

Nýjasta æði ljóshærðustu frændþjóðar okkar sem færði okkur abba, volvo, ikea og kjötbollur er enga feðrafylgd að altarinu, JÁ ENGVAR! snáfiði í sætin! brúðarmeyjar þerra tár feðra sinna meðan kvennprestar svíaríkis svífast einskis í að knésetja bandaríska bíómyndahefð.  Sé fyrir mér í framtíðinni í jafnréttisbaráttunni til að jafna hlut kynjanna að jesú var bara ladyboy, myndi útskýra ýmislegt einsog hárið, góðmennskuna og göfugleikann.

"þér megið kyssa brúðurina"


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband