Allt er nú til

Er frekar vanafastur miðað við vitleysing að vera en ég hef verið að gefa auga þessum litla sæta andrex hundi á hillum stórmarkaðana og sömu sögu er að segja með lambi salernispappann.  Er markaðsvæðing orðin það öfgafull að hægt er að gera og kaupa hvað sem er.  Jæja nóg með það, festi kaup á þessum andrex og viti menn ég hef aldrei kynnst eins góðum og mjúkum salernispappa enda úr eðal hvolpa labradorsskinni.

 

"er ekki hægt að fá breiðari vörúrval í hamstramati?"


Lú hú serrrr.... Neyðarlegt

Hvort er neyðarlegra? að nást eftir eftirför við lögreglu út í vegakanti skrapaður og sjúskaður með illa bilað hjól sem þú hafðir stungið þá af með rétt áður eða að missa þvag og saur og fá holdris á sviði samtímis er þú ert að kynna nærbuxur á nærfatatískusýningu.  Tja.... kannski bara bæði betra... 
mbl.is Féll af bifhjóli eftir að lögregla veitti honum eftirför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbjarna innrás á Íslandi, landið í óbyggð

jæja það er allt að gerast, veðurfarslegu heimsendaspárnar eru loks að rætast, ísöldinn er byrjuð og núna er bara að selja allar sínar veraldlegu eigur, fljúga á suðlægar slóðir og fá sér í glas.  Bíða svo blekaður eftir að ísbjörn hrifsi af manni andlitið og glopri því í sig.  Hin forni fjandi sem forfeður okkar bölvuðu svo lengi mun víst hafa yfirhöndina eftir allt saman.


mbl.is Ís byrjaður að myndast á ný á norðurheimskautinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimflaug með varnarskjöld

Ég sé bara þessa geimflaug, hvaða broskall eruð þið að tala um? geimflaug með varnarskjöld tilbúinn í orrustu í himingeimnum.

Ég þarf kannski að fara að láta sálgreina mig aftur, alltof neikvæður og hætta að horfa á þessa star trek þætti.

"traitor of the federation"´

p.s. sé núna að þetta er samsuðua úr kb og byr ef þeir ætla að sameinast.


mbl.is Broskallinn er 25 ára í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofþjónusta flugfreyja og íslands pissublöðrukuldi

Hin hliðin á fréttinni er held ég þessar stanslausu þjónustutilfþrif drykkjarfanga um borð í flugvélum meðal starfsmanna, þar sem keppst er um að tæma hverja fernuna og flöskuna á fætur annarri ofan í farþega, svo maður viti nú hverjir eru bestir og broslyndastir.  Erfitt fyrir góðhjartaða að neita ókeypis drykkjarföngum. 

Tala nú svo ekki um þegar maður stígur um borð í vélina í heitri evrópu og út í kuldabola á útskerinu í norðri, þá á nú til að herpast aðeins saman hjá manni kúturinn.  Og viti menn, ylvolg bunusprengjan rennur blíðlega niður eða maður bara sprautar þessu í landganginn. 

En og aftur vil ég minna lesendur á mikilvægi fullorðinsbleyja í flugsamgöngum.

 


mbl.is Flugfarþega varð mál í landganginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pay me one billion dollars!

Ég skil ekkert í þessu ég verð að segja það.... ég replæaði bara, " i not pay, i live in islandia, me salary all to loans and life" var samt að spá í að kannski fá þá til að koma hundinum fyrir kattarnef, er með ansi góða gæludýralíftryggingu á honum, bara helv... dilla í kjellingunni að vilja vera með þennan illa lyktandi 300þúsund króna pomerang sem slefar útum allt.  Ég borga ekki fleirri teppahreinsanir.  Ég legg aðeins inn á þá.  Kem vonandi út á sléttu með hundinn, hún verður bara að fá sér fiska.  


mbl.is Íslendingar fá hótanir í tölvupósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og köttur varð fyrir bíl líka

Hvaða frétt er nú þetta, handleggsbrot og önnur óheppni, copy paste úr lögregludagbókinni, skammast mín fyrir að hafa eytt tíma mínum í að lesa þessa frétt ef frétt mætti kalla.  Hlýtur að vera eitthvað bitastæðari en þetta að gerast, með fullri virðingu fyrir þeim óheppnu og vitlausu gauragangsprílurum. 

Hefði frekar mátt skrifa um hundinn hennar paris, víst með kvef og slæma magapínu, vart hugað lífi, það er sko áhugaverð frétt sem vert er að skoða.

 "bléeessaðurr...hvað segirðu, alltaf í boltanum?"


mbl.is Féll af þaki og handleggsbrotnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfrungapiss mun hægja á þessari þróun

Menn mega samt ekki gleyma þeim frosnu stórbirgðum sem eru föst í suðurheimsskautsísnum af forsögulegu höfrungapissi, þetta spendýrsþvag í ísnum getur losað út ammoníak í sjávarföllin og þar að leiðandi hraðað uppgufun vatns og aukið regn á svæðum við golfstrauminn.

 "djö...núna er ég búinn að missa það, 1-1-2, já góðan daginn, fá samband við geðdeild landspítalans."  


mbl.is Loðfílasaur flýtir hlýnun jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Diet light börn án viðbætts sykurs, hvað er að?

Einhver að hringja í íþrótta álfinn, börn í offituaðgerð, þetta orðasamhengi passar ekki saman, alveg einsog að tannbursta sig og fá sér máltíð er samanstendur af köldum trópí og heitri lifrapylsa.  Það gerir maður bara samt einu sinni því það myndast alveg ógleymanleg skán í efri góm sem fer seint og síðar meir.  En í raun og veru ættu barnaverndaryfirvöld í gegnum grunnskólana að vera löngu búinn að grípa inn í svona mál, 200 kg, djöfull er það fóðraður krakki.

"með aðeins einni kalóríu (en sveiflar samt blóðsykrinum í rugl og velkominn í vítahring ömurleikans) " 


mbl.is Í offituaðgerð 13 ára og tæp 200 kg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launa áskrift með 30% afslætti

ég bara spyr, af hverju að láta bjóða sér þetta? eru ríkisstarfsmenn eitthvað sárhentari en annað fólk á almennum markaði. 


mbl.is Allt að 30% launamunur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband